Skilmálar

I. Upplýsingar um seljanda

Nafn: Nordic Brands ehf.
Kennitala: 6102230520
Heimilisfang: Safamýri 67, 108 Reykjavík
Netfang: info@Nordicdiet.is
VSK-númer: 147803

II. Gildissvið

Þessir skilmálar gilda um öll viðskipti sem Viðskiptavinur gerir við Nordic Brands ehf. (rekstraraðila vörumerkisins Nordic Diet) um kaup á hundafóðri í áskriftar- og heimsendingaþjónustu. Skilmálarnir eru settir í samræmi við íslensk lög, m.a. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga og lög nr. 48/2003 um neytendakaup.

III. Vörulýsing

Nordic Diet býður ferskan og næringarríkan hundamat sem afhentur er í reglulegri áskriftarþjónustu með heimsendingu. Upplýsingar um innihald, næringargildi og pakkastærðir eru birtar á vefsíðu fyrirtækisins.

IV. Áskrift og afhending

  1. Áskrift er sjálfvirk og gjaldfærð á 28 daga fresti (fjögurra vikna fresti).
  2. Maturinn er sendur til viðskiptavinar á 28 daga fresti í samræmi við áskriftarsamning.
  3. Viðskiptavinur getur breytt afhendingu, sett áskrift í hlé eða sagt henni upp með því að skrá sig inn á mínar síður, eða senda email á Nordicdiet@Nordicdiet.is
  4. Enginn binditími er á áskrift. Uppsögn þarf að berast áður en næsta gjaldfærsla á sér stað. Hafi gjaldfærsla farið fram er pöntun afgreidd og áskrift telst lokið eftir afhendingu.

V. Verð og greiðslur

  1. Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK), með virðisaukaskatti.
  2. Greiðslur fara fram með greiðslukorti í gegnum örugga greiðslugátt Verifone.
  3. Nordic Diet varðveitir ekki kortaupplýsingar.
  4. Fyrirtækið áskilur sér rétt til verðbreytinga en tilkynnir slíkar breytingar með minnst 14 daga fyrirvara áður en næsta áskrift er gjaldfærð.

VI. Afhending og sendingarkostnaður

  1. Heimsending fer fram á afhendingarstað sem viðskiptavinur tilgreinir.
  2. Afhending er á 28 daga fresti, og er tilgreindur við fyrstu pöntun.
  3. Sendingarkostnaður er 0 kr með áskriftarplönum innan höfuðborgarsvæðisins.

VII. Kvartanir og ábyrgð

  1. Kvartanir vegna galla eða einhvers annars skulu sendar á netfangið nordicbrands@nordicbrands.is. og verður þeim svarað innan þriggja daga.
  2. Til að óska eftir skilum skal senda tilkynningu á nordicbrands@nordicbrands.is.
  3. Skil á matvörum eru aðeins möguleg ef varan er í upprunalegum, óopnuðum umbúðum nema um galla sé um að ræða.
  4. Sendingarkostnaður vegna skilanna er á ábyrgð kaupanda og er ekki endurgreiddur.

VIII. Persónuvernd og öryggi

  1. Meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við lög nr. 80/2018 um persónuvernd og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR).
  2. Greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt Verifone. Nordic Diet geymir ekki greiðsluupplýsingar.
  3. Viðskiptavinur getur afþakkað markaðsleg samskipti með því að íta á (unsubscribe).
Shopping Cart