Skilmálar
Þessir skilmálar gilda um kaup og áskrift að Nordic Diet.
Seljandi
Nordic Diet er rekið af Nordic Brands ehf.
Kennitala: 610223-0520
VSK-númer: 147803
Netfang: info@nordicdiet.is
Áskriftin
Nordic Diet er áskriftarþjónusta þar sem greitt er fyrir 28 daga af fóðri í senn. Maturinn er afhentur í einni eða fleiri sendingum innan tímabilsins eftir stærð hundsins:
- Hundar að 14 kg fá sendingu á 28 daga fresti.
- Hundar 15–44 kg fá sendingu á 14 daga fresti.
- Hundar 45 kg og þyngri fá sendingu vikulega.
Sendingatíðnin breytir ekki greiðslutímabilinu. Alltaf er greitt fyrir 28 daga í senn.
Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa á 28 daga fresti þar til þú setur hana í hlé eða segir henni upp. Næsta gjaldfærsludagsetning er aðgengileg á Mínum síðum.
Fyrstu sjö dagarnir
Nýir viðskiptavinir byrja á 7 daga skammti og greiða fyrir hann við pöntun. Verð á dag er það sama og í venjulegri áskrift.
Að þeim sjö dögum loknum tekur venjuleg 28 daga áskrift við og næsta gjaldfærsla fer fram, nema þú hafir sagt áskriftinni upp áður. Næsta gjaldfærsludagsetning kemur fram áður en þú staðfestir kaupin og á Mínum síðum.
Engin binding er í áskriftinni.
Verð og greiðslur
Verðið ræðst af dagsskammti hundsins. Dagsskammturinn er reiknaður út frá upplýsingum sem þú gefur okkur, meðal annars þyngd, virkni og hvort hundurinn er geltur eða ófrjór.
Öll verð sem birtast við kaup eru heildarverð með 24% VSK og heimsendingu.
Greitt er með Visa eða Mastercard í gegnum Verifone. Kortaupplýsingar eru meðhöndlaðar af greiðsluþjónustunni og Nordic Diet geymir ekki kortanúmerið þitt.
Eftir fyrsta 7 daga skammtinn er gjaldfært fyrir 28 daga í senn. Ef greiðsla gengur ekki í gegn getum við reynt gjaldfærsluna aftur og beðið þig um að uppfæra greiðsluupplýsingar. Ný sending er ekki afgreidd fyrr en greiðsla hefur gengið í gegn.
Ef verð breytist látum við þig vita áður en nýtt verð tekur gildi. Verðbreyting hefur ekki áhrif á tímabil sem þegar hefur verið greitt.
Sendingar
Nordic Diet sér sjálft um heimsendingar á þjónustusvæðinu.
Afhendingardagur ræðst af póstnúmeri. Hvert þjónustusvæði á sinn fasta vikudag, og nákvæm afhendingardagsetning kemur fram við pöntun og á Mínum síðum.
Ef þú breytir heimilisfangi getur afhendingardagurinn breyst eftir nýju póstnúmeri. Ef nýtt heimilisfang er utan þjónustusvæðis höfum við samband við þig.
Maturinn er afhentur frosinn. Ef þú óskar eftir að sending sé skilin eftir án þess að einhver taki á móti henni þarftu að tilgreina öruggan afhendingarstað. Við látum þig vita þegar sendingin hefur verið afhent samkvæmt þeim fyrirmælum.
Breytingar, frestun og hlé
Þú getur stjórnað áskriftinni á Mínum síðum.
Þú getur frestað næstu sendingu eða sett áskriftina í hlé. Þegar áskrift er í hléi fara engar nýjar reglulegar gjaldfærslur fram.
Breytingar á dagsskammti eða áskrift taka almennt gildi frá næsta greiðslutímabili og hafa ekki áhrif á tímabil sem þegar hefur verið afgreitt.
Uppsögn
Þú getur sagt áskriftinni upp hvenær sem er á Mínum síðum. Engin binding og ekkert uppsagnargjald er í áskriftinni.
Uppsögn stöðvar næstu sjálfvirku endurnýjun. Tímabil sem þegar hefur verið greitt heldur áfram eins og áætlað var og þú færð þær sendingar sem tilheyra því tímabili.
Uppsögn hefur ekki áhrif á réttindi sem þú kannt að eiga samkvæmt lögum.
Afpöntun
Ef þú vilt hætta við sendingu sem hefur þegar verið greidd skaltu gera það eins fljótt og hægt er á Mínum síðum eða hafa samband við okkur á info@nordicdiet.is.
Sé sendingin ekki komin í vinnslu endurgreiðum við hana að fullu.
Ef vinna við pöntunina er þegar hafin eða sendingin komin í dreifingu getur kostnaður sem afpöntunin hefur þegar valdið verið dreginn frá endurgreiðslu, eftir því sem heimilt er samkvæmt lögum.
Þetta hefur ekki áhrif á lögbundinn rétt þinn samkvæmt lögum um neytendakaup.
Gallar og vandamál með sendingu
Ef vara er gölluð, röng, skemmd við afhendingu eða sending berst ekki skaltu hafa samband við okkur á info@nordicdiet.is.
Við leysum úr málinu með endurgreiðslu, nýrri sendingu eða öðrum viðeigandi hætti eftir aðstæðum.
Réttindi þín samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 gilda óháð þessum skilmálum.
Um matinn
Réttir Nordic Diet eru heilfóður fyrir fullorðna hunda. Innihaldslýsing, næringargildi, aukefni og leiðbeiningar um geymslu eru aðgengileg með hverjum rétti.
Réttirnir eru ekki ætlaðir hvolpum. Ef hundurinn er með sjúkdóm, ofnæmi eða sérstakar næringarþarfir mælum við með að þú ráðfærir þig við dýralækni áður en skipt er um fóður.
Dagsskammturinn sem Nordic Diet reiknar út er viðmið byggt á upplýsingum um hundinn. Þarfir hunda geta verið mismunandi og því er mikilvægt að fylgjast með þyngd og ástandi hundsins og aðlaga skammtinn eftir þörfum.
Breytingar á skilmálum
Við getum uppfært þessa skilmála eftir þörfum. Ef breyting hefur veruleg áhrif á áskriftina þína látum við þig vita áður en hún tekur gildi.
Breytingar hafa ekki afturvirk áhrif á kaup sem þegar hafa verið gerð.
Lög og ágreiningur
Um viðskiptin gilda íslensk lög.
Ef eitthvað kemur upp hvetjum við þig fyrst til að hafa samband við okkur á info@nordicdiet.is svo við getum reynt að leysa málið.
Náist ekki samkomulag getur neytandi eftir atvikum leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa eða Neytendastofu.
Síðast uppfært: 13. september 2026.
These terms apply to purchases and subscriptions from Nordic Diet.
Seller
Nordic Diet is operated by Nordic Brands ehf.
Company ID (kennitala): 610223-0520
VAT number: 147803
Email: info@nordicdiet.is
The subscription
Nordic Diet is a subscription service where you pay for 28 days of food at a time. The food is delivered in one or more shipments within that period, depending on the size of your dog:
- Dogs up to 14 kg receive a delivery every 28 days.
- Dogs of 15–44 kg receive a delivery every 14 days.
- Dogs of 45 kg and over receive a delivery every week.
The delivery frequency does not change the billing period. You always pay for 28 days at a time.
The subscription renews automatically every 28 days until you pause or cancel it. Your next billing date is shown on My Pages.
The first seven days
New customers start with a 7-day portion and pay for it when ordering. The price per day is the same as in the regular subscription.
When those seven days are over, the regular 28-day subscription takes over and the next payment is taken, unless you have cancelled the subscription before then. The next billing date is shown before you confirm your purchase and on My Pages.
There is no minimum term.
Prices and payments
The price is based on your dog's daily portion. The daily portion is calculated from the information you give us, including weight, activity level and whether the dog is neutered or spayed.
All prices shown at checkout are total prices including 24% VAT and home delivery.
Payment is made by Visa or Mastercard through Verifone. Card details are handled by the payment provider and Nordic Diet does not store your card number.
After the first 7-day portion, you are charged for 28 days at a time. If a payment fails, we may retry the charge and ask you to update your payment details. A new shipment is not dispatched until payment has gone through.
If prices change, we will let you know before the new price takes effect. A price change does not affect a period that has already been paid for.
Deliveries
Nordic Diet handles home deliveries itself within its service area.
Your delivery day is determined by your postcode. Each service area has its own fixed weekday, and the exact delivery date is shown when you order and on My Pages.
If you change your address, your delivery day may change according to the new postcode. If the new address is outside our service area, we will contact you.
The food is delivered frozen. If you would like a delivery left without anyone receiving it, you must specify a safe place. We will let you know when the delivery has been made according to those instructions.
Changes, postponing and pausing
You manage your subscription on My Pages.
You can postpone your next delivery or pause the subscription. While a subscription is paused, no new recurring payments are taken.
Changes to the daily portion or the subscription generally take effect from the next billing period and do not affect a period that has already been processed.
Cancellation of the subscription
You can cancel the subscription at any time on My Pages. There is no minimum term and no cancellation fee.
Cancelling stops the next automatic renewal. A period that has already been paid for continues as planned, and you receive the deliveries that belong to that period.
Cancelling does not affect any rights you may have under the law.
Cancelling a delivery
If you want to cancel a delivery that has already been paid for, do so as soon as possible on My Pages or by contacting us at info@nordicdiet.is.
If the delivery has not yet gone into processing, we refund it in full.
If work on the order has already begun or the delivery is already out for distribution, costs already incurred by the cancellation may be deducted from the refund, to the extent permitted by law.
This does not affect your statutory rights under the Consumer Purchases Act.
Defects and problems with a delivery
If a product is defective, wrong, damaged on delivery, or a delivery does not arrive, contact us at info@nordicdiet.is.
We will resolve the matter with a refund, a replacement delivery or another appropriate remedy, depending on the circumstances.
Your rights under the Consumer Purchases Act no. 48/2003 apply regardless of these terms.
About the food
Nordic Diet recipes are complete food for adult dogs. The ingredient list, analytical constituents, additives and storage instructions are available with each recipe.
The recipes are not intended for puppies. If your dog has an illness, an allergy or special nutritional needs, we recommend consulting a veterinarian before changing food.
The daily portion calculated by Nordic Diet is a guideline based on the information about your dog. Dogs' needs vary, so it is important to keep an eye on your dog's weight and condition and adjust the portion as needed.
Changes to these terms
We may update these terms as needed. If a change materially affects your subscription, we will let you know before it takes effect.
Changes do not apply retroactively to purchases that have already been made.
Governing law and disputes
These transactions are governed by Icelandic law.
If something comes up, we encourage you to contact us first at info@nordicdiet.is so we can try to resolve it.
If no agreement is reached, a consumer may, as applicable, refer the matter to the Icelandic Consumer Complaints Committee for goods and services (Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa) or the Consumer Agency (Neytendastofa).
Last updated: 13 September 2026.