Svona virkar það

Þrjú skref. Þú tekur það fyrsta.

Þú svarar nokkrum spurningum. Við sjáum um restina.

Taktu prófið
  1. Segðu okkur frá hundinum

    Þú svarar nokkrum einföldum spurningum um hundinn þinn.

  2. Við reiknum rétt magn

    Við reiknum dagsskammtinn út frá þyngd, virkni og geldingu.

  3. Við eldum og sendum heim

    Maturinn kemur tilbúinn. Þú geymir hann í kæli eða frysti og berð fram.

Kælir Opnar Berð fram

Geymist í kæli í 5–7 daga eða í frysti við −18°C. Eftir opnun skal neyta innan 2 daga.

Nú getur hundurinn þinn loksins
borðað holt eins og þú.

Hundur borðar Nordic Diet á eldhúsgólfinu meðan eigandinn eldar

Spurningar áður en þú ákveður

Hvað kostar Nordic Diet?

Verðið fer eftir því hversu stóran dagsskammt hundurinn þinn þarf.

Taktu tveggja mínútna prófið og þú sérð nákvæmt verð fyrir þinn hund áður en þú pantar.

VSK og heimsending eru innifalin.

Hvernig skipti ég úr þurrmat yfir í Nordic Diet?

Gerðu það rólega á um 7 dögum.

Byrjaðu með lítið magn af Nordic Diet með gamla fóðrinu og auktu hlutfallið smám saman þar til skiptin eru kláruð.

Leiðbeiningar fylgja fyrstu sendingunni.

Tekur maturinn mikið pláss í frystinum?

Það fer eftir stærð hundsins.

Minni hundar fá meira afhent í einu en stærri hundar fá tíðari og minni sendingar svo maturinn taki ekki allan frystinn.

Prófið sýnir hversu marga poka hundurinn þinn þarf.

Get ég byrjað á 7 dögum?

Já. Þú getur byrjað á 7 daga sendingu og prófað matinn áður en fyrsta 28 daga tímabilið hefst.

Þú greiðir aðeins fyrir þessa 7 daga til að byrja með.

Er binding?

Nei, það er engin binding. Þú getur sagt upp áskriftinni á Mínum síðum áður en næsta gjaldfærsla fer fram.

Ef tímabil hefur þegar verið gjaldfært klárast það tímabil og áskriftin stoppar svo.

Get ég breytt magninu?

Já. Undir Planið á Mínum síðum geturðu breytt pokafjöldanum.

Breytingin tekur gildi við næstu gjaldfærslu.

Til í að finna rétta matinn fyrir þinn hund?

Svaraðu nokkrum einföldum spurningum og sjáðu skammtinn, réttinn og verðið. Engin skuldbinding.

Finna plan hundsins míns

Tekur 2 mínútur · Engin binding · Þú getur breytt hvenær sem er