Spurt og svarað

Spurningar og svör

Um matinn

Hvað er Nordic Diet?

Nordic Diet réttirnir eru heilfóður fyrir hunda, eldaðir við lágan hita til að viðhalda sem best næringarefnum hráefnanna. Maturinn uppfyllir næringarþarfir hundsins og það þarf ekki að bæta neinu við.

Við reiknum dagsskammtinn fyrir hundinn þinn, maturinn kemur frosinn heim og þú þarft bara að þíða og bera fram.

Af hverju ferskt fóður?

Ferskt fóður er fyrir þá sem vilja gefa hundinum sínum það besta: mat sem líkist meira þeim mat sem við sjálf borðum, nema sérstaklega hannaðan, skammtaðan og eldaðan fyrir hunda.

Er Nordic Diet heilfóður?

Já. Hver réttur er heilfóður fyrir fullorðna hunda og inniheldur öll nauðsynleg næringarefni. Þú þarft ekki að bæta neinu við.

Þarf ég að elda matinn?

Nei. Hann kemur tilbúinn. Þú þíðir matinn og berð hann fram.

Hvað er í matnum?

Réttirnir innihalda 60% ferskt kjöt eða fisk, ásamt grænmeti og nauðsynlegum vítamínum og steinefnum. Ekkert kjötmjöl, engin rotvarnarefni og ekkert korn.

Fullur innihaldslisti hvers réttar er alltaf sýnilegur, á síðunni Réttirnir og á hverjum poka. Þú getur séð nákvæmlega hvað er í matnum.

Af hverju kemur maturinn frosinn?

Frystingin heldur matnum ferskum án rotvarnarefna. Maturinn er eldaður við lágan hita til að viðhalda sem best næringarefnum hráefnanna og síðan frystur.

Hentar maturinn öllum hundum?

Réttirnir eru heilfóður fyrir fullorðna og eldri hunda. Dagsskammturinn er reiknaður út frá þyngd, virkni og því hvort hundurinn sé geldur.

Hvolpar eru enn að vaxa og þurfa sitt eigið plan. Þú getur skráð þig á hvolpalistann í prófinu og við látum vita þegar það verður í boði.

Hvað ef hundurinn minn er matvandur?

Ef hundurinn þinn er matvandur er Nordic Diet sérstaklega góður kostur. Margir hundar eru matvandir á þurrmat eða ákveðinn blautmat, en Nordic Diet er búið til úr venjulegum matvælum.

Ef hundurinn þinn verður spenntur fyrir matnum sem þú borðar eru því góðar líkur á að hann verði spenntur fyrir Nordic Diet líka.

Hvað ef hundurinn minn er með viðkvæman maga?

Skiptu rólega yfir á um 7 dögum. Breyting á fóðri getur haft tímabundin áhrif á meltinguna.

Ef hundurinn er með viðvarandi meltingarvandamál eða greindan sjúkdóm er best að ræða við dýralækni áður en skipt er um fóður.

Hvað ef hundurinn minn er með ofnæmi?

Fullur innihaldslisti hvers réttar er alltaf sýnilegur. Þú getur séð nákvæmlega hvað er í matnum og athugað hvort eitthvað sé í honum sem hundurinn þolir illa.

Ef hundurinn er með greint fæðuofnæmi eða er á sérstöku fóðri frá dýralækni er best að ræða við dýralækni áður en skipt er.

Get ég blandað Nordic Diet við þurrmat?

Já, það er hægt, en við erum ekki að selja það sérstaklega.

Ef þú vilt blanda geturðu tekið þyngd hundsins, deilt henni með tveimur eða þremur eftir því hversu stóran hluta þú vilt gefa sem Nordic Diet og sett þá þyngd inn í prófið.

Við mælum þó með fullum dagsskammti af Nordic Diet.

Dagsskammturinn

Hvað á hundurinn minn að fá mikið?

Við reiknum það fyrir þig út frá þyngd, virkni og því hvort hundurinn sé geldur.

Þú sérð dagsskammtinn og verðið áður en þú pantar.

Hvernig veit ég að dagsskammturinn sé réttur?

Dagsskammturinn úr prófinu er góður upphafspunktur. Fylgstu með holdafari, þyngd og virkni hundsins fyrstu vikurnar.

Þú getur síðan breytt magninu á Mínum síðum ef þarfir hundsins breytast.

Hvað ef hundurinn léttist eða þyngist?

Þá geturðu uppfært planið á Mínum síðum. Dagsskammturinn getur breyst eftir þyngd og virkni hundsins.

Geymsla

Hvernig geymi ég matinn?

Settu sendinguna í frysti þegar hún kemur.

Taktu næsta poka út kvöldið áður og láttu hann þiðna í kæli yfir nótt.

Hvað geymist maturinn lengi í ísskáp?

Óopnaður poki geymist í kæli í 5–7 daga.

Eftir að pokinn hefur verið opnaður skal neyta matarins innan 2 daga.

Tekur maturinn mikið pláss í frystinum?

Það fer eftir stærð hundsins.

Minni hundar fá meira afhent í einu en stærri hundar fá tíðari og minni sendingar svo maturinn taki ekki allan frystinn.

Prófið sýnir hversu marga poka hundurinn þinn þarf.

Má hita matinn?

Já. Þú getur meðal annars notað örbylgjuofn til að afþýða matinn. Notaðu þá helst afþýðingarstillinguna og passaðu að maturinn verði ekki heitur.

Hrærðu vel og athugaðu hitann áður en þú gefur hundinum. Maturinn á að vera kaldur eða volgur, ekki heitur.

Hvað má maturinn standa lengi í skálinni?

Líttu á hann eins og annan ferskan mat. Ekki láta hann standa lengur en um tvær klukkustundir við stofuhita.

Settu afganga aftur í kæli.

Verð og áskrift

Hvað kostar Nordic Diet?

Verðið fer eftir því hversu stóran dagsskammt hundurinn þinn þarf.

Taktu tveggja mínútna prófið og þú sérð nákvæmt verð fyrir þinn hund áður en þú pantar.

VSK og heimsending eru innifalin.

Af hverju kostar ferskt fóður meira en venjulegt hundafóður?

Nordic Diet er gert úr fersku kjöti eða fiski, grænmeti og öðrum hráefnum. Maturinn er eldaður, frystur og sendur heim til þín.

Þú færð líka dagsskammt sem er reiknaður sérstaklega fyrir hundinn þinn.

Get ég byrjað á 7 dögum?

Já. Þú getur byrjað á 7 daga sendingu og prófað matinn áður en fyrsta 28 daga tímabilið hefst.

Þú greiðir aðeins fyrir þessa 7 daga til að byrja með.

Er binding?

Nei, það er engin binding. Þú getur sagt upp áskriftinni á Mínum síðum áður en næsta gjaldfærsla fer fram.

Ef tímabil hefur þegar verið gjaldfært klárast það tímabil og áskriftin stoppar svo.

Hvenær er gjaldfært?

Fyrsta greiðslan fer fram þegar þú staðfestir pöntun.

Eftir það er greitt fyrir 28 daga tímabil í senn. Þú sérð næstu gjaldfærsludagsetningu og upphæð á Mínum síðum.

Get ég breytt magninu?

Já. Undir Planið á Mínum síðum geturðu breytt pokafjöldanum.

Breytingin tekur gildi við næstu gjaldfærslu.

Get ég frestað sendingu?

Já. Undir Sendingar á Mínum síðum geturðu frestað næstu sendingu.

Næsta gjaldfærsla færist þá með henni svo sendingar og greiðslur haldist í takt.

Get ég sett áskriftina í hlé?

Já. Þú getur sett áskriftina í hlé á Mínum síðum og byrjað aftur þegar þér hentar.

Hvernig segi ég upp?

Þú segir upp á Mínum síðum. Það er ekkert uppsagnargjald.

Ef næsta tímabil hefur þegar verið gjaldfært klárast það tímabil og þú færð þær sendingar sem þú hefur þegar greitt fyrir. Engin frekari gjaldfærsla fer síðan fram.

Hvað gerist með tímabil sem ég hef þegar greitt fyrir?

Þú færð það sem þú hefur greitt fyrir.

Ef tímabilið hefur þegar verið gjaldfært berast sendingarnar sem tilheyra því áfram samkvæmt áætlun. Uppsögn stöðvar næsta tímabil.

Get ég bætt við öðrum hundi?

Já. Á Mínum síðum velurðu Bæta við hundi og tekur prófið fyrir nýja hundinn.

Hver hundur fær sitt eigið plan og dagsskammt.

Sendingar

Hvar sendið þið?

Við sendum heim að dyrum í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði.

Ef þú býrð annars staðar geturðu skráð þig á biðlista í prófinu.

Hvaða dag fæ ég sendinguna?

Afhendingardagur ræðst af póstnúmeri og þú sérð dagsetninguna áður en þú greiðir.

Hversu oft fæ ég sendingu?

Það fer eftir stærð hundsins svo maturinn taki ekki allan frystinn.

  • Að 19 kg: á 28 daga fresti
  • 20–40 kg: á 14 daga fresti
  • 41 kg og yfir: vikulega

Þú greiðir alltaf fyrir 28 daga tímabil í senn. Maturinn kemur einfaldlega í fleiri sendingum fyrir stærri hunda.

Kostar heimsending?

Nei. Heimsending er innifalin í verðinu.

Verðið sem þú sérð í prófinu er verðið sem þú greiðir.

Hvað ef ég er ekki heima?

Ef þú svarar ekki þegar við komum hringjum við í þig og finnum lausn.

Hvað ef eitthvað vantar eða kemur skemmt?

Sendu okkur línu á info@nordicdiet.is með pöntunarnúmeri og mynd ef þú hefur hana.

Við sendum vöruna aftur eða endurgreiðum hana.

Að byrja

Hvernig skipti ég úr þurrmat yfir í Nordic Diet?

Gerðu það rólega á um 7 dögum.

Byrjaðu með lítið magn af Nordic Diet með gamla fóðrinu og auktu hlutfallið smám saman þar til skiptin eru kláruð.

Leiðbeiningar fylgja fyrstu sendingunni.

Hverju má ég búast við fyrstu dagana?

Sumir hundar geta fengið tímabundna breytingu á hægðum á meðan þeir venjast nýjum mat.

Ef hundurinn er viðkvæmur skaltu hægja á skiptunum.

Hvað tekur prófið langan tíma?

Um tvær mínútur.

Þú svarar nokkrum spurningum um hundinn og sérð dagsskammtinn og verðið strax í lokin. Prófið er ókeypis og án skuldbindingar.

Hvenær get ég byrjað?

Strax.

Taktu prófið, staðfestu planið og þú sérð fyrsta afhendingardag áður en þú klárar pöntunina.

Sérsniðið plan fyrir þinn hund.

Það tekur um tvær mínútur. Eftir það kemur maturinn með reglulegum sendingum.

Taktu prófið

Enn með spurningu? Sendu okkur línu á info@nordicdiet.is og við svörum á virkum dögum innan 24 klukkustunda.